15.3.2007
Íslendingar nýjungagjarnir
Ég keypti mér Coke-Zero í gærkvöldi þó að það séu allir kælar fullir af þessu upp í vinnu og ég geti nælt mér í flösku þar frítt.
Afgreiðslumaðurinn á BSÍ sagði að það hefði verið rokna sala strax fyrsta daginn sem Zero kom. Það kom mér á óvart. En svo rifjaðist upp hvað Íslendingar eru nýjungagjarnir.
Ég spurði líka hárgreiðslukonuna sem klippti mig í morgun og hún sagði að búið væri að kaupa Zero inn á hennar heimili. "Maður prófar allt nýtt sem kemur," sagði hún og brosti vandræðalega."
Afgreiðslumaðurinn á BSÍ sagði að það hefði verið rokna sala strax fyrsta daginn sem Zero kom. Það kom mér á óvart. En svo rifjaðist upp hvað Íslendingar eru nýjungagjarnir.
Ég spurði líka hárgreiðslukonuna sem klippti mig í morgun og hún sagði að búið væri að kaupa Zero inn á hennar heimili. "Maður prófar allt nýtt sem kemur," sagði hún og brosti vandræðalega."
Forstjóri Coca-Cola í Skandinavíu aðstoðar við kynningu hjá Vífilfelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahaha, ég keypti svona fyrir litku stelpuna mína, hún saup og OJJJJJJJJBARA kom hjá henni, ég smakkaði og gat eingvanvegin láð henni ojjjið.
Sigfús Sigurþórsson., 15.3.2007 kl. 14:19
Féll í þann fúla pitt að kaupa eina flösku en það verður ekki keypt önnur flaska! Versti gosdrykkur sem ég hef smakkað
Bjarni Þór Björgvinsson (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 14:50
eða cherry cola
Tómas Þóroddsson, 15.3.2007 kl. 17:22
Hefðbundið Coke er best og það verður aldrei neitt framleitt sem toppar það ískalt.......
En við erum ákaflega nýungargjörn þjóð það er alveg hárrétt.........
Vertu í Coke megin í lífinu....
Eiður Ragnarsson, 15.3.2007 kl. 18:12
Ég ætlaði nú verða svo frægur að versla eins og eina flösku í dag, en þegar ég fór í 10-11 voru bara til hlandvolgar flöskur... svo ískalt Coke Light varð fyrir valinu. Annars er alls staðar verið að tala um þetta, greinilegt að það eru alvöru auglýsingamenn á bakvið þessa herferð!
Agnar Freyr Helgason, 15.3.2007 kl. 22:45
Hver kom eiginlega fram með þessi ömurlegu slagorð: Af hverju ekki konur með ZERO skoðanir og Af hverju ekki konur með ZERO bílpróf??
Ömurlegt. Reyndar hæfir það drykknum sem er ógeðslega vondur.
hee (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 13:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.