Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bakhópurinn bloggar

Jæja, góð vinnuvika að baki hjá Góðum samskiptum.

Unnum vel og slöppuðum líka af í sólinni inn á milli.

---

Um helgina er ég bæði að fara að taka þátt í steggjun og brúðkaupi. Þó ekki sama manns.

Fartölvan verður þó ekki langt undan því ég er á vakt í bakhópi ansi áhugaverðs leiðangurs um landið.

3752392440_81941ab02a

---

Það er semsagt verið að setja met.

3751598731_8ee0b91278

Einar Vilhjálmsson
spjótkastari og metangas-frömuður og Ómar Ragnarsson fyrrum rallkappi og umhverfisverndarsinni ætla að verða fyrstir til að aka hringinn á umhverfisvænu al-íslensku eldsneyti.

Það er á breyttum bensín pikköp sem þeir gera þetta, en það voru nemendur í Borgarholtsskóla sem sáu um breytinguna með hjálp góðra manna.

3751598787_663c94d0e4

---

En semsagt, til að gera þetta enn skemmtilegra og vekja sem mesta athygli á þessum raunhæfa valkosti í umhverfisvænum samgöngum, þá höfum við sett upp sérstaka bloggsíðu um þessa svaðilför þeirra félaga.

3752391944_c00d989393

Einar og Ómar munu gera netnotendum auðvelt að fylgjast með því hvernig ferðin gengur og því sem á daga þeirra drífur á leiðinni, því þeir eru með sítengingu um borð í bílnum auk ýmis annars búnaðar.

Ég og aðrir munum svo aðstoða þá eftir megni í sérstökum bakhóp.

---

Þeir sem vilja fylgjast með þessu ættu að kíkja á bloggið hér á mbl.is.

---

Svo er það skemmtileg nýjung í svona leiðangri, að hægt er að fylgjast með för metanbílsins í rauntíma með hjálp GPS-tækninnar.

Skoðið það hér
.

---

Þarna sést m.a.s. hversu hratt þeir aka metanbílnum eftir þjóðveginum á hverjum tíma.

Þannig að ekki láta Blöndóuslögguna vita af síðunni fyrr en þeir eru komnir framhjá Wink

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver

Andrés Jónsson

Andrés Jónsson


Góð samskipti ehf.

Vox Pop

Virkar "trausts"-sjónvarpsauglýsingin frá sparisjóðunum?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband