9.11.2009
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt
aðgát skal höfð i nærveru sálar.
...orti Einar Benediktsson.
---
Eitt af því sem ég predika jafnan bæði á námskeiðum og fyrirlestrum sem ég held og gagnvart skjólstæðingum Góðra samskipta, er að fólk eigi að brosa á myndum.
Gott bros geti gjörbreytt því sem annars væri frekar ómerkilegt myndefni í bjarta og skemmtilega mynd.
Fólk lítur eiginlega alltaf betur út brosandi.
---
Fáir hafa fylgt þessum vinsamlegu tilmælum mínum jafn vel og þau Viktor og Sigfríð hjá Kreditkortum.
Þessi mynd fylgdi fréttatilkynningu þar sem sagði frá viðurkenningu sem American Express kortafyrirtækið veitti þeim.
Smellið tvisvar til að fá myndina stóra.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 12.11.2009 kl. 14:23 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dropinn breytir veig skálar....ekki veg.
Flott síða samt og góðir hlutir í gangi hjá Góðum Samskiptum !!
Smá athugasemd (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 21:08
Takk fyrir þetta :)
Andrés Jónsson, 12.11.2009 kl. 13:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.