4.1.2009
Efst á óskalistanum
Mig langar svo óskaplega mikið í þessa fallegu safír-bláu Netbook-fartölvu frá Acer.
Þessar litlu nettölvur voru meðal vinsælustu raftækjanna á Amazon þessi jól og ég er ekki hissa.
Kosta innan við $500. Spurning að maður byrji að safna sér fyrir einni.
-----
Ég hef lengi verið skeptískur á raunverulega gagnsemi 3G síma.
Sérstaklega á Íslandi, þar sem notkunin verður alltaf takmarkaðari heldur en í stórborgum erlendis.
Þess vegna hef ég þráast við að fá mér margmiðlunar-síma og verið að bíða eftir því að það kæmi á markað almennileg míkró-fartölva, sem kosti nógu lítið til að réttlæta kaup á henni, þrátt fyrir annmarka í samanburði við fullvaxnar fartölvur.
Og nú virðist það loksins vera að gerast.
-----
Annars er það mín trú, að þær einkatölvur sem í framtíðinni verði vinsælastar, verði svipað stórar og tímarit eru í dag. Og álíka þykkar.
Síðan held ég að öll framhliðin á þeim verði snertiskjár eins og iPhone.
Og að maður muni taka hana með sér hvert sem maður fer og tengja svo við stærri skjái heima hjá sér og í vinnunni og jafnvel víðar.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:41 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Andrés minn... ef þú lætur verða af því að fá þér þessa fartölvu - viltu þá gefa mér þína gömlu? Mín er gott betur en 4 ára og orðin ansi dyntótt. Ég þarf að endurnýja en hef ekki efni á því!
Lára Hanna Einarsdóttir, 5.1.2009 kl. 02:39
Það gæti bara vel verið Lára mín.
Ég er einmitt búinn að vera á leiðinni að biðja þig um greiða. Er að fara halda námskeið í fjölmiðlaframkomu og er að reyna klippa saman (í Windows Movie Maker) nokkur atvik úr fréttum og sjónvarpsþáttum, sem sýnidæmi.
Datt í hug að þú lumaðir á tugum klukkustunda af slíku efni á hörðum diski sem ég gæti kannski fengið hjá þér?
Ég er með eitthvað sem ég er búinn að taka upp með Windows Media Recorder á undanförnum mánuðum... en þetta bara svo lítið.
Andrés Jónsson, 5.1.2009 kl. 08:43
Ég á svo ofboðslega mikið að þú verður að segja mér nákvæmlega hvernig eða hvaða myndbrot þú vilt fá. Ertu með það á hreinu?
Annas var ég nú að grínast með að gefa mér fartölvuna þína, ég held að ég safni mér bara fyrir nýrri og megaöflugri - veitir ekki af.
Lára Hanna Einarsdóttir, 5.1.2009 kl. 13:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.