Leita í fréttum mbl.is

Þessi auglýsing fer í óskaplega í taugarnar á mér



Hvaða skilaboð eru þetta "Mamma, ætlaði að strauja skyrtuna mína"?

Hver trúir því að það séu "greind" ensím í þessu dufti?

Og hvað er málið með klippinguna á drengnum? Hefði hann ekki frekar átt að strauja skyrtuna sína bara sjálfur og biðja mömmu sína að klippa sig?


Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hefurðu prófað vöruna?

Eg get sagt þér að þessi auglýsing fór fyrst að fara verulega í taugarnar á mér eftir að hafa prófað vöruna og fundist hún mun slakari en aðrir blettahreinsar sem ég hef prófað.

"Greind ensím"??  Af hverju hefur ekki verið gerð athugasemd við þetta?  Líklega af því að flestum finnst okkur þetta bara einfaldlega allt of fáránlega bjánalegt til að senda inn athugasemdir.

Þessi ensím sem ég prófaði við blettahreinsun voru augljósir vanvitar

Baldvin Jónsson, 13.12.2008 kl. 18:04

2 Smámynd: Guðmundur Björn

Þessi dansk auglýsing ætti að koma þér í gott skap!

http://www.youtube.com/watch?v=lU2yCz7eqv4

Guðmundur Björn, 13.12.2008 kl. 18:14

3 Smámynd: Ásgerður

Hættu bara að horfa á þessa auglýsingu,,,og horfðu á eitthvað sem fer ekki í taugarnar á þér

Ásgerður , 14.12.2008 kl. 10:12

4 identicon

Hreinsiefnaauglýsingar  eru  langflestar  byggðar á  einhverskonar blekkingum . Vanish auglýsingarnar held ég séu einna  verstar. Það er rétt, að  þetta með  "greindu ensímin" er   svo hallærislegt að menn hafa ekki  nennt  að  fetta  fingur út í það.

Sumar  eru þessar auglýsingar  atlögur  að  almennri  skynsemi, -  eða það sem  Englendingar mundu kalla "insult to intelligence".

Annars minnir þetta mig á fjögurra ára gamlan  son   vinar míns sem fyrir  mörgum árum  krotaði  út  heilan  vegg í   íbúðinni.  Faðir hans   var  lítt  hrifinn. "Já, pabbi,  en Þrif  þrífur allt" sagði þá  sá  stutti.  Svona er máttur auglýsinganna mikill.  Auðvitað þurfti að málaveginn að  nýju.

Eiðurt Guðnason (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 11:58

5 identicon

  -----  mála vegginn ---- átti þetta auðvitað að vera

Eiður (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 11:59

6 identicon

Sammála þér Albert.  Alveg út í hött.

Ólöf de Bont (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 12:51

7 identicon

Sammála þér Andrés.  Alveg út í hött.

Ólöf de Bont (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 12:52

8 Smámynd: Gunnar Björn Björnsson

lol  mér finnst þetta ætti að vera sett í kaffi alþingismanna, greind ensím það er ekki ósönn orð á máttur fjölvakans gerir fyrirtækjum og framleiðendum kleift að búa til froðuhausa, t.d. eins og mig ég hef keypt vanish 3svar sinnum alltaf að bíða og sjá hvort hin dollan hafi verið gölluð því árangur STÓÐ Á SÉR. Hahahahaha frábært dæmi um mína eigin heimsku.

Gunnar Björn Björnsson, 14.12.2008 kl. 13:44

9 identicon

Drengurinn er sænskur. Hann veit ekki betur. Þess vegna er hárið hans svona og fatasmekkurinn eftir því.

GJ (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 13:45

10 Smámynd: Erla Margrét Gunnarsdóttir

mér finnt þessi auglýsing með þeim hallærislegri sem ég hef séð og eru þær nú margar mjög vafasamar í þvottabransanum. en þessi finnst mér það hallærisleg að hún nær hringinn og verður skemmtileg, haha :)

Erla Margrét Gunnarsdóttir, 17.12.2008 kl. 13:54

11 Smámynd: Gísli Hjálmar

Bíddu!

... er það ekki merki um að hún virkar?

Gísli Hjálmar , 20.12.2008 kl. 17:55

12 identicon

Er þetta ekki úr einhverju MILF?

Dabbi Ó (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 10:11

13 identicon

Drengurinn er með 80´s look af hári, bæði strípum og klippingu og gott ef hann er ekki við það að koma út úr skápnum!

Elísabet (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband