2.11.2008
Vel heppnuð sjónvarpsauglýsing
Ég sé að Hekla - notaðir bílar eru komnir með nýja sjónvarpsauglýsingu.
Hressileg, með legóköllum og leikfangabílum í aðalhutverki. Ekki löng, en náði athygli allra sem voru að horfa.
Ekkert okkar er í bílahugleiðingum akkúrat núna. En ef svo hefði verið þá hefði hún náð árangri.
-----
Auglýsingafræði eru ekki nákvæm fræði og misjafnt hvaða stefnur menn aðhyllast.
Ég er persónulega hrifinn af auglýsingum sem standa út úr. En þá þurfa fyrirtækin að þora að hugsa út fyrir kassann og þola að einhverjir starfsmanna og viðskiptavina nöldri.
Viðtekin sannindi eru nefnilega svo rík í okkur og það er ein helsta ástæða þess að menn eru alltaf að apa eftir hvor öðrum í markaðssetningu.
Þessi auglýsing Heklu hefur líka ekki kostað mikið í framleiðslu.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 19:55 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Andrés,
Bílaumboðin hafa örlitla sérstöðu hvað varðar ákvarðanatöku kaupenda því stór hluti (man ekki hlutfallið) kaupa á bílum er ákveðinn fyrirvaralaust. Það þýðir að fólk kaupir bíl skyndilega og án mikils undirbúnings vegna þess að eitthvað hefur komið upp á, eins og, skilnaður, árekstur eða jafnvel uppsögn í starfi (einstakl missir vinnubíl).
Þetta leiðir af sér að bílaumboðin og merkin þeirra, þurfa að vera með stöðu í huga fólks þegar þetta tiltekna ástand kemur upp.
Sammála þessu ?
kv.g
gylfi (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 08:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.