3.9.2008
Vinna, vinna, vinna
Nóg að gera í litla almannatengslafyrirtækinu á þessum fagra miðvikudagsmorgni.
Verkefni morgunsins:
1. Klára kynningu sem grænu orkuútrásarmennirnir ætla að flytja á fundi í Kólumbíu á eftir.
2. Skipuleggja heimsókn framkvæmdastjóra evrópska æskulýðssambandsins hingað til lands eftir rúmar 2 vikur.
3. Setja saman kynningu sem flutt verður á fundi nokkurra norrænna upplýsingafulltrúa ráðuneyta í Bláa lóninu á morgun. Fluttur af mér semsagt. Kynningin fjallar um mikið hjartans mál mitt eða "PR in the age of social media".
Um leið er ég að vinna í almennum fyrirlestri um kynningarmál sem ég ætla að flytja víðar í vetur. Þeir sem vilja bóka mig mættu gjarnan hafa samband.
Ég er svo að gæla við að skella mér aðeins ofan í lónið eftir fyrirlesturinn.
Liggja og mara í hálfu kafi í hádeginu á vinnudegi. "Það er Síminn!"... eða eitthvað :)
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:59 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.