19.2.2007
Kauphallarhrun á ári svínsins?
Var að horfa á CNN áðan þar sem kínverskur stjörnufræðingur var að gefa fjárfestum ráð um hvernig þeir gætu best ávaxtað pund sitt á nýja árinu - ári svínsins.
Í stuttu máli þá er árið 2007 svokallað loga-ár eins og öll ártöl sem enda á 7. Það þýðir að hitna mun undir fjárfestum og útlit fyrir mikinn óstöðugleika í kauphöllum heimsins. Dæmi um þetta voru, að sögn stjörnufræðingsins, kauphallarkreppan í New York árið 1987 og Asíukreppan árið 1997.
Aðspurður sagði kínverjinn að öruggast væri að færa allt sitt fé yfir í gull og aðra góðmálma. Ekki kom fram hvort hann væri sjálfur með sitt fé í málmum og gæti hagnast persónulega á að veita þessa ráðgjöf.
Það sem mér fannst hins vegar merkilegra var það sem annar kínverji hafði að segja sem rætt var við í lok fréttarinnar. Þetta var gamall maður og hrumur, með sítt skegg og í rauðum skrautbúning. Sá lýsti því yfir að FENG SHUI væri ekkert nema gömul hjátrú.
Gott að búið sé að kveða upp úr með það loksins.
Flokkur: Hlutabréfamarkaðurinn | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.