Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Sjónvarp

Lokaþáttur Survivor og lokaþáttur stjórnarskipta

bingi grímur og earlÉg hef lítið með fylgst með raunveruleikaþættinum Survivor undanfarin ár en ég hafði mjög gaman af þessum þáttum á sínum tíma. Fyrr í kvöld datt ég svo inn á lokaþáttinn í nýjustu seríunni sem sýndur er á Skjá Einum.

Það rann upp fyrir mér ljós á meðan ég var að horfa á þetta, kviðdóminn og þá sem voru komnir í úrslit og orðaskiptin þarna á milli, að þessi þáttur gerir út á að sýna fólk vera bæði dónalegt og vont við annað fólk. 

Reyndar má segja það sama um fréttaskýringarþættina Kastljós og Ísland í dag frá því fyrr í kvöld og síðustu kvöld. Þeir hafa verið á svipuðum nótum og uppgjörið í lokaþætti Survivor.

 

Áherslur nýs sjónvarpsstjóra Skjás Eins

talskonan og tyraÉg tók eftir því að talskona Feminístafélagsins er búin að sækja um sjónvarpsstjóradjobbið á Skjá einum.

Ég sé ekki annað en að hún eigi góða möguleika á að fá starfið með þessa úrvals menntun og þann ágæta skilning á fjölmiðlaumhverfinu sem hún virðist búa yfir, sé miðað við alla athyglina sem Femínistafélagið hefur fengið í fjölmiðlum undanfarin ár.

En Skjár Einn hefur reyndar ekki verið alveg til fyrirmyndar þegar kemur að baráttunni gegn staðalímyndum, a.m.k. ekki á mælikvarða Feminístafélagsins og því er soldið fyndið að spá í hvaða þáttum verði fyrst fleygt út úr dagskránni eftir ráðningu talskonunnar á Skjáinn?

 

  • Americas Next Top model: Staðalímyndaaðvörun!!! M.a.s. kallarnir eru konur í þessum þætti
  • How Clean is Your House: Tvær kellingar þrífa ógeðsleg hús. Fléttulisti eða út!
  • Wife Swap: Staðalímyndir af húsmæðrum - tvöföld skömm!
  • Beinar útsendingar frá fegurðarsamkeppnum: Hnakkar þessa lands - so sorry!
  • Sex Inspectors: Bera falsvitni um þörf kvenna fyrir forleik umfram karla - aldrei meir!
  • The Bachelor: Mýtan um konur sem giftast til fjár fest í sessi - svei!
  • The Swan: Þessi hlýtur að hverfa, hver sem verður sjónvarpsstjóri - ojj!

Sjálfsagt myndu fleiri þættir fá að fjúka en hvað ætli kæmi í staðinn? Hugmyndir?


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 266116

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband