Færsluflokkur: Hagstjórnin
17.2.2007
Athyglisverðar pælingar hjá Atla
Atli Már, stjórnmálafræðinemi við HÍ og gamall kojufélagi minn af línubátnum Gylli frá Flateyri, var að birta fína grein á bloggsíðu sinni um Indland og hvað gerist þegar vel menntað fólk fer að skorta tækifæri á heimaslóðum. Mæli með lestri hennar.
AJ.
P.s. Talandi um Indland - af hverju skyldi svona mikið af hæfileikafólki eiga rætur sínar að rekja til Flateyrar?
P.p.s. Ég sé að áðurnefndur línubátur, sem hét Gyllir þegar ég og Atli Már og fleiri sóttum á honum sjóinn, hefur verið seldur til útgerðarmanna í Suður-Afríku. Það er skemmtilegt því það voru einmitt tveir mjög duglegir hásetar á honum á sama tíma og ég sem voru frá Suður-Afríku.
Hagstjórnin | Breytt 17.6.2015 kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007
Krónan er Austin Mini, Evran er strætó!
Margir eru sjálfsagt hálf-ringlaðir í þessari umræðu um íslensku krónuna og mögulega upptöku evrunnar.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, ungur hagfræðingur í Seðlabankanum, skrifar grein í Markaðinn á miðvikudag sem útskýrir vel kosti og galla þessara tveggja gjaldmiðla. Mér fannst reyndar synd að greininni skyldi ekki hafa verið gert hærra undir höfði í blaðinu, því hún er fjári góð.
Ég birti því link á hana hér.
AJ.
P.s. Það er reyndar líka athyglisvert að hagfræðingur í Seðlabankanum þori að skrifa svona opinskátt um þessi mál. Yfirmaður Þorvarðar Tjörva og andstæðingur evrunnar, Davíð Oddsson er enda þekktur fyrir að slá fast í höfuð manna með reglustriku sem segja eða gera eitthvað sem er honum á móti skapi.
Hagstjórnin | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar